Velkomin í Svartaskóg !
Hótel Svartiskógur stendur í fögrum skógarlundi í Jökulsárhlíð. Þar er hægt að gista, hvort sem er á tjaldstæði eða í góðum herbergjum. Kvöldverður og morgunverður er í boði fyrir dvalargesti.
Umhverfið er falleg sveit, Dyrfjöllin sjást vel hinum megin Héraðs og stutt upp á Hellisheiði, einn hrikalegasta fjallveg á Íslandi. Þar er útsýnisskifa, þar sem nöfnin á fjallahringnum koma fram og vel sést til Jökulsár- og Lagarfljótsósa.
Egilsstaðir eru í 30 km fjarlægð og ef farið er yfir Hellisheiði eru aðeins 60 km á Vopnafjörð.
Hefð er fyrir því að síðsumars sé haldinn Pallasöngur. Þá er farið upp í skóginn, sungið og spilað á nikku við kertaljós í kvöldmyrkrinu.